4.8.06

a terrific business-man-weekend

Atlavík - Þjórsárdalur - Galtalækur. Þetta voru staðirnir sem ég sótti heim um Verslunarmannahelgar þegar ég var ungur. Ég fór auðvitað fyrst á Bindindismótið í Galtalæk við rætur Heklu. Þar byrjaði ég að drekka eins og svo margir aðrir enda var það stranglega bannað og þ.a.l. mjög spennandi. Síðan fór ég í nokkur skipti í Þjórsárdalinn og svo eitt sinn í Atlavík með nokkrum skátum frá Akranesi. Það fór samt lítið fyrir góðverkunum þá helgina.
Þegar maður segir mið-evrópubúum frá þessum sér-íslenska sið; að fara á fjögurra daga stanslaust fyllerý einhvers staðar innan um nauðganir og slagsmál, þá renna á marga tvær grímur. Síðan reynir maður að réttlæta þessi ósköp en smátt og smátt áttar maður sig á því að það er bara eiginlega ekki hægt.
Best var þó lýsing vinkonu minnar úr Keflavík á ferð á Þjóðhátíð eitt árið:
"Ég var orðin svo full á leinni út í Eyjar með Herjólfi að ég ældi yfir bakbokann minn. Síðan þegar við komum út í dal og byrjuðum að tjalda þá fór að rigna svona líka rosalega að við blotnuðum inn að skinni. Um kvöldið dró einhver hálfviti mig með sér inn í eitthvað tjald og var næstum búinn að nauðga mér. Mér tókst einhver veginn að skríða út og þar í drullunni týndi ég veskinu mínu. Þegar ég kom aftur í tjaldið okkar þá var búið að stela öllu áfenginu okkar en það gerði ekkert til því við fengum landa gefins frá einhverjum sjóurum. Eitthvað hefur landinn verið slæmur því næsta dag gat ég engum mat haldið niðri. Þá um kvöldið hætti að rigna og um nóttina tók sig einhver til og brenndi tjaldið okkar. Á mánudeginum á leiðinni heim ældi ég allan tímann, bæði í Herjólfi og svo í rútunni...... Þetta var ÆÐISLEG HELGI!"
Góða ferð!
BTK

3 Comments:

At 9:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Aldrei hef ég þvílíka súpuna sopið. Góð saga. Úrkynjuð þjóð í miðju Atlantshafi.
Versló er rugl. Sendir maður túrista niður í bæ á Akureyri þegar 18.000 manns extra eru í bænum til þess eins að dansa til að gleyma, syngja til að muna, drekka til að?

Æjiégveitþaðekki

Lilja

 
At 12:13 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ahhh... Húnaver 1989 .... Shit mar!!!! Laugavatn, 1990 Best að byrja ekkert á þessu....

En það koma nokkrar ælur við sögu !!!! æðislegar helgar mar....

Örvar í útlöndum

 
At 1:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

...dansleikur með Geirmundi í félagsheimilinu Árgarði, sunnudagskvöldið í versló, klikkaði aldrei... Helga sveitastelpa

 

Skrifa ummæli

<< Home